Velkomin(n) á Heimasíðu NyX ehf
Velkomin(n) á heimasíðu NyX ehf.
NyX ehf er alhliða tölvu og hýsingarþjónusta og er okkar aðal markhópur lítil og meðalstór fyrirtæki. Við höfum kappkostað við að veita sem ítarlegasta tölvuþjónustu fyrir okkar viðskiptavini.
Nyx ehf er endursöluaðili fyrir öll helstu tölvumerki sem fást á Íslandi, má þar nefna Dell, HP, Acer, Philips, Apple og fl. Einnig bjóðum við upp á allar gerðir af fylgihlutum og rekstrarvörum. Í október 2010 tókum við í notkun öflugan hýsingarsal til þess að geta boðið okkar viðskiptavinum heildarþjónustu í upplýsingatæknimálum. Salurinn er mjög vel tækjum búinn og með öfluga nettengingu.
NyX ehf hefur að skipa öflugum hópi starfsmanna sem hafa mikla sérþekkingu. Nyx ehf hefur "Partner" stöðu hjá Microsoft, Dell, HP, Citrix og Trend Micro.
Það er markmið okkar að veita persónulega og hagkvæma þjónustu þar sem lögð er áhersla á þarfir viðskiptavinarinns og að aðstoða stjórnendur við að ná betur utan um tækni og hugbúnaðarmál sinna fyrirtækja.
Með bestu kveðju
Ásgeir Ásgeirsson
Framkvæmdastjóri NyX ehf.
Við bjóðum upp á
- Tölvubúnaður
- Öryggismyndavélakerfi
- Hýsingarþjónusta
- Notaður tölvubúnaður







